.G

Ég fékk ábendingu um að liturinn á linkunum á síðunni væri óþægilegur þannig að ég breytti útlitinu og nú spyr ég:
Er þetta útlit betra eða verra en það gamla?? :)

kv G.

Ekki alveg ađ standa mig ;)G

Hæhæ. Ég er ekki alveg að standa mig í að halda síðunni við en ætla nú að reyna að bæta úr því. Ég er sjálf í fullu námi og auðvitað sinna barninu mínu þannig að það er nóg að gera og annað sem gengur oft fyrir hjá mér af illri nauðsyn.
Henti inn upplýsingum um áfengisneyslu á meðgöngu, tanntöku barnatanna, link á uppskriftir fyrir börn (Hollt og gott fyrir börn) og svo persónulegu ráði frá mér við svefnvandamáli stráksins míns þegar hann var 6 mánaða (16 mánaða núna). Set inn meira efni fljótt.
Takk kærlega fyrir góð viðbrögð og ábendingar.

..G

Hæhæ!
Afsakið langa bið, hef ekki uppfært síðuna í allt sumar ;)
Er samt alls ekki hætt með hana, ætla mér að bæta miklu við og fullt af efni er á leiðinni. Megið samt auðvitað benda mér á hvað sem er ef það tengist efni síðunnar ;) Takk fyrir kommentin og heimsóknirnar ;)

G

Ég hef lítið komist í að uppfæra síðuna að undanförnu því ég er að læra fyrir próf en ég mun bæta við fullt af efni í sumar. Það gæti alveg dottið inn eitt og annað á næstunni en væntanlega ekki mikið fyrr en í júní.

Gleđilegt sumar!!G

Gleðilegt sumar!!

UppskriftirG

Hér eru nokkrar uppskriftir fyrir kríli sem ég hef verið að prófa mig áfram með ;) Ég gufusýð eða sýð allt grænmetið, kartöflurnar, pastað og suma ávextina. Svo mauka ég allt saman með töfrasprota. Pastað sem ég nota eru grænmetisskrúfur (grænar, appelsínugular og hvítar), þær eru auðvitað hollari en eingöngu hvítt hveitipasta. Ég nota pasta mikið til að gera grænmetis og kjötréttina orkumeiri og hafragraut út í ávaxtamaukið í sama tilgangi. Það er auðvitað alltaf hægt að sleppa því. Ég nota hreint skyr svolítið í ávaxtamauk en bara í litlu magni. Skyr er ekki æskilegur matur fyrir börn yngri en eins árs því það er of próteinríkt og svo er það fitusnautt og börnin þurfa fituna. Ég nota það pínulítið með út í sumt ávaxtamaukið.
Gott er að bæta ólívuolíu (eða aðra holla olíu) út í réttina.
Það eru ekki hlutföll í öllum uppskriftunum en þá þarf bara að smakka sig til. Skiptir nú oftast engu hver hlutföllin eru í ávaxtamaukinu, bara ca jafnmikið af öllu.
Ég reyni að setja svolítið af grænmeti eins og brokkoli og blómkáli út í t.d. eplamauk eða perumauk. Það passar mjög vel saman og er góð leið til að fá börn sem helst ekki vilja grænmeti til að borða það með.
Ég frysti svo alla réttina bara í plastboxum eða klakaboxum. Þegar ég nota klakabox þá færi ég klakana í merkta frystipoka þegar þeir eru frosnir svo þeir mengist ekki.
Merki svo allt með innihaldi og dagsetningu.

Flestir réttirnir ættu alveg að henta fyrir börn fljótlega eftir 6 mánaða aldurinn ef þeir eru maukaðir vel. Þegar börnin eldast er svo hægt mauka það minna og hafa það aðeins þykkara.

Grænmetis- og pastaréttur

Grænmetispasta (eftir smekk)
nokkrar brokkoligreinar
1 lítil rófa
2-3 tómatar
1 epli
Vatn (ef maukið er of þykkt)


Kjúklingaréttur

1 kjúklingabringa
grænmetispasta eftir smekk
1 sæt kartafla
1 lítil rófa
1 tómatur
Vatn (þar til passlega þykkt)

Kjúklingur
1 sæt kartafla
Gulrætur (svipað magn og kartöflurnar)
Vatn (þar til passlega þykkt)


Hakkréttir


Hakk
Gulrætur
Kartöflur
Rófur
Vatn (ef maukið er of þykkt)

Hakk
Grænmetispasta
Tómatsósa


Svínakjötsréttur


3 svínakótilettur
grænmetispasta eftir smekk
1 sæt kartafla
2 tómatar
Smá af brokkoli
Smá af blómkáli
Vatn (þar til passlega þykkt)



Ávaxtamauk


Sveskjur
Epli
Pera

1-2 bananar
1 avocado

1-2 bananar
1 mango

Bananar
Mango
Hafragrautur

Bananar
Gul melóna
Hafragrautur

Bananar
Pera
Hafragrautur

Bananar
Epli
Pera
Mangó
Skyr (hreint skyr, má sleppa)

Epli
Pera
Mangó

Epli
Smá brokkoli
Smá blómkál



Ég skellti þessum uppskriftum hér til vinstri undir flokkinn Næring barna. Svo mun ég bæta við fleirum smátt og smátt.

Fínar heimasíđurG

Ef að þið eruð dugleg/ar að búa sjálf til mat handa krílunum ykkar þá mæli ég með uppskriftasíðunni hennar Sigrúnar www.cafesigrun.com
Hún er með link sem heitir Fyrir smáfólkið og þar eru ýmsar sniðugar uppskriftir handa ungbörnum. Hún byggir svolítið á uppskriftunum hennar Annabel Karmel sem er búin að sérhæfa sig mjög mikið í ungbarnamat. Heimasíðan hennar er
www.annabelkarmel.com  Annabel Karmel er reyndar að selja uppskriftabækur líka svo hún setur ekki allar uppskriftirnar sínar á netið en samt eru einhverjar á síðunni hennar.
Ég var einmitt að fylla á frystinn minn um daginn með heimatilbúnum mat fyrir minn 10 mánaða grallara og var að prófa ýmsar blöndur. Mæli með að nota avocado með sem flestu. Það er svo orkuríkt og inniheldur svo holla fitu. Passar mjög vel að blanda því saman við t.d. banana. Svo finnst mér voða gott að mauka pasta (grænmetispasta) eða hafragraut við ýmislegt til að gera ávaxta- og grænmetismaukið matarmeira. Þá nota ég bara töfrasprota til að allt blandist vel. Bara smá hugmyndir ;) Gaman að prófa sig áfram.
Kíkið endilega á heimasíðurnar. Það er einnig linkur á þær hér til vinstri.
Ef þið lumið á góðum uppskriftum fyrir kríli megiði endilega senda mér e-mail því ég ætla að setja inn link með uppskriftum bráðum. Addressan er
gie1@hi.is. Eins ef þið eigið fyndna gullmola frá börnum eða fæðingarsögur ;)

Takk takk

Kv

SnertingG


Mannveran er vera snertingar. Sérstaklega á fyrstu árum ævinnar skynjum við meira og minna allan heiminn með snertingu. Mesta snertiskyn nýfædds barns er í munninum en allt yfirborð húðar þess þarfnast líka snertingar. Í hinum firrta heimi nútímans eru konur vitandi eða óafvitandi farnar að forðast snertingu við börn sín, sérstaklega nakin. Við fyrsta mögulega tækifæri eru börn klædd í föt. Er það til að forðast kulda eða forðast snertingu? Það er vitað mál að nakið barn við nakta húð móður fylgir hita hennar, er rólegra og ánægðara. Næst er barnið sett í plastvöggu. Það er gert til þæginda en mæður leitast oft við að hafa barnið sem mest í vöggunni og taka það upp eins sjaldan og þær komast af með. Þær reyna jafnvel löngum stundum að rugga barninu í svefn í vöggunni í stað þess að taka það upp í faðminn þar sem það væri mun fljótara að sofna.

Brjóstagjöf ber með sér að um mikla og nána snertingu er að ræða. Margar mæður reyna að hafa hverja gjöf sem stysta og líta á það sem sigur ef þeim tekst að takmarka gjafir við nokkrar mínútur. Tilhneiging er í þá átt að líta á langar gjafir sem óþarfar, óþekkt í barni eða að barnið sé að nota brjóstið "eins og snuð". Þegar barnið er í raun í örvæntingu að reyna að vera í nánd móður sinnar og fá þá næringu sem líkami þess þarfnast. Ákveðinn fjöldi kvenna kýs að hafa barn sitt ekki á brjósti annað hvort vegna þess að þær geta ekki hugsað sér svo nána snertingu eða að þær líta svo á að barnið verði ekki eins háð þeim ef að þær sleppa því. Hægt er að leiða að því líkum hvers þau börn fara á mis við.

Mörg svokölluð hjálpartæki brjóstagjafar verða til þess að snerting minnkar. Má þar nefna t.d. mexicanahatta, snuð, pela, stóla, púða, pullur mjaltapumpur og tæki til að hlusta eftir börnum.

Barnabílstóll er skylduöryggistæki í bílum. Hann ætti ekki að nota til að geyma barn í löngum stundum eða rugga og svæfa barn í. Gjafapúðar eiga fyrst og fremst að vera stuðningur undir handleggi móður. Barn á ekki að liggja á honum beint án snertingar móður. Svona mætti áfram telja.

Það er börnum til góðs að hvetja mæður þeirra til að snerta þau meira. Segja þeim að þetta sé ein af grunnþörfum barns sem þarf að uppfylla. Því meira þeim mun betra. Barn sem er svipt snertingu er líklegra til að verða vansælt og óvært. Það getur líka hjálpað að reyna að draga úr notkun þeirra hjálpartækja sem minnka snertingu við börn og kenna rétta notkun þeirra sem notuð eru. Það er líka allt í lagi að líta gagnrýnum augum á hjálpartæki brjóstagjafar og barnavörur. Því þótt tilgangurinn sé í flestum tilfellum góður leynast möguleikar á misnotkun víða.

Katrín Edda Magnúsdóttir brjóstagjafaráðgjafi,IBCLC sept ´03


Verum dugleg að knúsa börnin okkar ;)

Vona að páskarnir hafi verið notalegir!

Gleđilega páska!G

Gleðilega páska!



Hafið það sem allra best!



Og borðið vel af páskaeggjum ;)



Páskakveðjur!!

Fćđingarsögur og gullmolar óskast!G

Takk fyrir góð viðbrögð!
Ég er búin að henda inn fullt af efni núna undanfarna daga en það er mjög margt enn ókomið sem kemur á næstunni. Ég ætla m.a. að bæta inn flokkunum Fæðingarsögur og Gullmolar barna. Í þá flokka væri frábært að fá efni frá sem flestum ;) Ef þið eigið fæðingarsöguna/ar ykkar skrifaðar eða gullmola frá barninu/börnunum ykkar og viljið leyfa mér að birta hér svo aðrir hafi gagn og gaman af þá endilega sendið mér e-mail á
gie1@hi.is. Auðvitað notum við bara leyninöfn. Í fæðingarsögunum væri samt gott að vita aldur móður, kyn barns og númer barns í barnahópnum ef það á við og í gullmolunum þá kyn og aldur barns. Eins megið þið endilega senda mér e-mail ef ykkur finnst ég vera að gleyma einhverju mikilvægu hér á síðunni eða bara hvað sem er ;) Ég vil endilega fá feedback frá ykkur svo ég geti haft síðuna sem besta.

Takk takk

Ađalvalmynd

I

Auglýsing

Heimasíđur tengdar fćđingu

Heimasíđur tengdar börnum

Vörur fyrir brjóstagjöf

Heimasíđur tengdar skírn

Nćring barna

Tómstundir

Heimasíđur tengdar tómstundum

Verndum börnin okkar

Dagforeldrar og leikskólar